Fréttir
Go Red fyrir konur

Hreyfing heilsulind er í samstarfi við Hjartavernd með átakið GoRed fyrir konur á Íslandi, forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma. 

Sunnudaginn 22. febrúar kl. 13-16 verður opin dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem átaksverkefninu GoRed fyrir konur á Íslandi verður ýtt úr vör. Við hvetjum allar konur til að koma við í Ráðhúsinu þennan dag, fjöldi skemmtilegra uppákoma í boði eins og tískusýning, áhugaverðir fyrirlestrar, góðar gjafir og margt fleira.
 
GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation. Verndari átaksins á Íslandi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.

Sjá nánar hér

Til baka