Fréttir
Söfnun til styrktar Mæðrastyrksnefndar

Hreyfing ætlar að endurtaka í ár vel heppnaða söfnun til styrktar Mæðrastyrksnefndar frá síðasta ári.   Við skorum á viðskiptavini að taka þátt í þessari söfnun með okkur. 
Við söfnum krukku- og dósamat til að afhenda Mæðrastyrksnefnd fyrir jólin.  Hreyfing hvetur alla gesti heilsulindarinnar til að leggja til tvær krukkur/dósir til styrktar verkefninu.  Söfnunin hefst 1. des og stendur yfir til 15. des. 

Þessi tími er einnig mikilvægur til að styrkja líkama og sál og því veitir Hreyfing öllum þeim sem leggja til tvær eða fleiri matardósir/krukkur 14 daga fríkort í Hreyfingu.  Tilvalið til að stinga með í jólapakkann :-)
Hreyfing hvetur alla viðskiptavini til að leggja Mæðrastyrksnefnd lið.  Oft var þörf en nú er nauðsyn.

Til baka