Umsagnir frá þátttakendum um námskeiðin

Fyrirlestur í upphafi námskeiðs ásamt heilsubæklingi var til fyrirmyndar og virkaði ótrúlega vel á mig.  Það kvöld var vendipunkturinn í að koma sér af stað, hvetjandi, fagmannlegur, uppbyggjandi og lyfti námskeiðinu á hærra plan! Heilsulindin fór fram úr mínum væntingum, góð stemning, heimilisleg, snyrtileg, hreinleg og besta búnings og sturtuaðstaða sem ég hef prófað!  Hef prófað flestar! Guðbjörg á svo stærstan hlutann í því að ég ætla að halda áfram hjá ykkur ?  Hún er frábær..Takk fyrir mig.


Ég verð að segja að ég er afskaplega ánægð er að byrja aftur í Hreyfingu eftir langt hlé og var ekki búin að gera mér grein fyrir því hvílíkur munur er á Hreyfingu og öðrum líkamsræktarstöðvum( hef verið í World class ), hvað varðar fagmennsku, metnað og annað. Þurfti að hætta í smá stund til að læra gott að meta en hvílíkur munur bæði á þessu lokaða námskeiði og öðrum opnum tímum. Ekki hægt að líkja þessu saman. Ég er alsæl og langar að fara á annað námskeið núna í okt.


Þetta er nákvæmlega námskeiðið sem ég þurfti, vildi bæta þol og styrk um leið og ég tók mataræðið EXTRA í gegn, algjörlega sykurlaust, en það sem mér fannst frábærast var hvað það blandaðist vel við þær sem ætluðu ekki að missa nein kíló og voru í góðum málum í mataræði og þær sem voru virkilega að taka það í gegn.  Þetta má auðvitað þakka vönduðum vinnubrögðum hjá þeim sem settu saman þetta námskeið, svo ekki sé minnst á hana Guðbjörgu sem er algjör þungavigtarmanneskja í þessu,ég veit að ég tala fyrir hönd okkar flestra á námskeiðinu og það er umtalað hversu frábær í alla staði hún er, alltaf hress, vandvirk, áhugasöm og svo auðvitað æðislegur kennari.  Ég tók sjálf tvöfalda tíma, þ.e.a.s líka tímana kl: 09 á eftir Elítunni svo nú er ég að springa úr orku og líður eins og ég eigi heiminn, ég mæli nú þegar með þessu við þá sem hafa spurt mig um þetta námskeið og ætla að skella mér aftur eftir áramót, takk fyrir mig?


Árangur Elítan: Góðir tímar fyrir vanar.  Gott að fá svona spark í rassinn.  Brennsluskýrslan gerir mikið og hvetur.  Elítu-kúrinn mjög góður, heldur manni algerlega frá sykri.  Mann langar ekki einu sinni í súkkulaði, eins og ég er mikill nammigrís.
Uppskriftirnar og bréfin alveg frábær.


Ég gaf fullt hús stiga af því að ég er hæstánægð með árangurinn, ég hef aldrei tekið mig svona vel á og þetta er alveg rosalega gott námskeið. Sérstaklega fannst mér líka gott hvað þið þjálfararnir hafið verið þægilegar og aðgengilegar ef maður hefur þurft að spyrja ykkur. Annars undra ég mig mest á því að ég hef mjög mikla löngun til þess að fara í spinning tíma en það er auðvitað bara af því að þið hafið vakið áhuga okkar á spinning, og sýnt okkur að það getur verið góð útrás og skemmtun að taka virkilega vel á því. Ég býst sterklega við því að ég muni skrá mig á námskeið hjá ykkur aftur.

Að mæta í tíma með öðrum hjá góðum kennara held ég að séu bara bestu kaupin í líkamsrækt. Þú ert látin gera æfingar sem þú hefur ekki hugmyndaflug í sjálf (a.m.k. ekki ég), æfa vöðva og auka styrk á fjölbreyttan og skynsamlegan hátt. Mér finnst ég hafa fengið fullt fyrir peninginn þegar ég er búin að fara í góðan tíma.


Mataræðisleiðbeiningarnar eru í tiltölulega víðum ramma sem hentar mér vel. Forðast sykur, draga úr fituneyslu, auka grænmeti og ávexti finnst mér vera lykillinn að þessu, án þess að sturlast í einhverju prógrammi sem ég nenni alls ekki og passar ekki inn í fjölskyldulífið. Nú langar mig bara til að reyna að ganga svolítið lengra. Aðeins meira grænmeti og ávextir ... oftar fiskur og fitusnauðari matreiðsluaðferðir, ég kann þetta allt, þarf bara áminningu og örlítið aðhald. Ég missti ekki mörg kíló en ég veit hvernig ég get gert það ... en ég missti fullt af cm og minnkaði fituprósentuna.


Aftur á stundatöflu

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti