NÝTT! Sport fit

Hefst 2.mars!

Sport fit er ætlað að hámarka árangur þinn í líkamsrækt. Æfingakerfið byggir á áratugalangri reynslu við þjálfun íþróttafólks þar sem skemmtun og fjölbreytileiki æfinga er hafður að leiðarljósi.

Í Sport fit eru gerðar fjölbreyttar æfingar bæði inni og úti til að hámarka árangur þátttakenda markvisst. Byrjendanámskeiðið byggist á kennslu grunnæfinga og réttri líkamsbeitingu til að hjálpa þátttakendum að ná árangri með stigvaxandi álagi.
Á byrjendanámskeiðinu eru stundaðar 40 mismunandi þol- og styrktaræfingar þar sem þátttakendur ýmist etja kappi við tímann eða fjölda endurtekninga. Þátttakendur skrá niður árangur sinn á hverri æfingu og markvisst er unnið að því að sýna framfarir hverju sinni.
Sport fit er fjölbreytt æfingakerfi sem er sérhannað af Valdísi Sylvíu Sigurþórsdóttur, einkaþjálfara og þolfimileiðbeinanda. Sport fit kennarar hafa allir gengist undir sérþjálfun, þeir hafa auk þess allir reynslu af þrekkeppnum, fjallgöngum og hlaupaþjálfun og koma til með að miðla þeirri reynslu áfram til þátttakenda.
Verð kr. 25.900

Skráðu þig hér


S2
 Tími  Kennari  Staðsetning
Þri. 16.20 - 17.20 Salóme Guðmundsdóttir Salur 3
Fös. 16.20 - 17.20 Salóme Guðmundsdóttir Salur 3
Fim. 16.20 - 17.20 Svanhildur Jónsdóttir Salur 3

Aftur á stundatöflu

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti