Umsagnir viðskiptavina

"Ég hef stundað æfingar í Hreyfingu um árabil og líkað afskaplega vel. Staðsetningin fyrir mig er frábær, miðja vegu milli heimilis og vinnu og gott að fá bílastæði.
Öll aðstaða innandyra er til fyrirmyndar og góðir pottar og aðstaða utandyra bæði mýkir og kælir heitan kroppinn niður. Á eftir er maður því vel endurnærður og tilbýinn í átök dagsins. Ekki spillir fyrir að á morgnan er góður hópur sem spáir mikið í spil atvinnulífsins."

Jafet S. Ólafsson
Framkvæmdastjóri

"Ég æfi í Hreyfingu og vil hvergi annars staðar vera. Þar er góður andi og einstaklega skemmtilegur félagsskapur. Tímataflan er mjög fjölbreytt og vel upp sett þannig að það er alltaf hægt að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér eru frábærir kennarar sem vinna af mikilli fagmennsku. Ég læt heilsuræktina ganga fyrir og gef mér tíma til að stunda hana reglulega því það skilar sér í auknum afköstum og vellíðan í daglegu amstri."

Vilborg Þórarinsdóttir
Útibússtjóri Glitnis

"Hreyfing virkar mjög vel fyrir mig. Ég hugsa mikið um heilsuna enda er hún eitt það dýrmætasta sem við eigum. Ég mæti reglulega í Hreyfingu og get ekki verið án þess. Stöðin er einstaklega vel staðsett, góð tæki, frábær hjólasalur og öll aðstaða bæði inni og úti er til fyrirmyndar. Takk fyrir mig! "




Hrafnkell Sigtryggsson
Sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Intrum

"Fyrir 7 árum skráði ég mig á átaksnámskeið hjá Hreyfingu og náði strax góðum árangri. Ég léttist um 20 kg og það hefur virkað mjög hvetjandi fyrir mig alla daga síðan. Hér mæti ég hlýlegu andrúmslofti og glaðlegu starfsfólki. Í Hreyfingu er mikið úrval af vönduðum skemmtilegum hóptímum og það gerir æfingar mínar bæði fjölbreyttari og ánægjulegri. Eftir að ég eignaðist mitt fjórða barn fór ég í einkaþjálfun og það hefur hjálpað mér mikið að ná fyrra formi á mettíma. Barnapössunin í Hreyfingu er til fyrirmyndar og traust starfsfólk gerir mér kleift að stunda æfingarnar áhyggjulaust meðan börnin mín eiga góða stund í leiklandi."
Ólöf Björg Magúsdóttir
Fjögurra barna móðir


"Ég æfi reglulega í Hreyfingu og hef gert í mörg ár. Ástæðan fyrir því að ég stunda mína líkamsrækt þar er það góða, afslappaða og heimilislega andrúmsloft sem þar hefur alla tíð ríkt. Eftir opnun nýrrar Hreyfingar í Glæsibæ er aðstaðan eins og best verður á kosið þar sem öll æfingaaðstaða, tæki, búnaður og aðkoma er með miklum ágætum. Ennfremur hafa starfsmenn Hreyfingar allaf haft mikla þjónustulund og þannig viðmót að þægilegt er að koma til æfinga og það skiptir mig mjög miklu máli."
Gylfi Rútsson
Framkvæmdastjóri

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti