Hóptímasalir

Í Hreyfingu eru fjórir rúmgóðir hóptímasalir þar sem eru í boði fjölbreyttir hóptímar s.s. ýmis námskeið, pallatímar, hjólatímar, pilates og jóga.

Á fyrstu hæð er salur 1.  Stór, rúmgóður þolfimisalur.  Allir vinsælustu opnu hóptímarnir eru í þessum sal.

Á annari hæð eru þrír hóptímasalir þar á meðal glæsilegasti  hjólasalur landsins.  Hjólasalurinn er afar vel útbúinn, með 50 fyrsta flokks spinning hjól, fullkomnu hljóðkerfi sem bæði skilar þátttakendum tærum og skýrum hljómi auk þess sem skýringar leiðbeinenda komast vel til skila í hljóðkerfinu.

Salur 3 er rúmgóður og sérstaklega ætlaður lokuðum námskeiðum. Allir hóptímasalirnir eru búnir fyrsta flokks hljómflutningstækjum og fullkomnu hljóðnemakerfi til að tryggja að þátttakendur heyri vel skýringar leiðbeinenda.

Strive 1,2,3 lyftingasalur er í sal 4. Hin mögnuðu Strive 1,2,3 tæki  eru sérhönnuð til að ná sem mestum árangri á sem skemmstum tíma í styrktarþjálfun.  Æfingar eru gerðar á þrjá mismunandi vegu þar sem álag á vöðva er ólíkt og hámarkar á þann hátt viðbrögð vöðvanna.  Strive tækin eru notuð m.a. af Bandaríska hernum sökum þess hve áhrifarík þau eru fyrir notendur.

.

  Sjá alla vikuna
Geothermal Spa
 

Póstlisti Hreyfingar

Þú færð sendar fréttir, nýjustu tilboðin, fróðleik, heilsu uppskriftir o.fl.

Póstlisti