Gjafakort Hreyfingar er einstök gjöf. Fjölbreytt úrval þjónustu og vara í boði.
Gefðu gjafakort í Japanskt Kobido háls, herða og andlitsnudd
Kobido byggir á aldagamalli japanskri hefð og er talin vera náttúruleg upplyfting fyrir húðina. Meðferðin hefst á háls- og herðanuddi til að koma blóðflæði vel af stað. Sléttar og mildar hreyfingar í andliti draga úr spennu, í kjölfarið er fylgt eftir með röð af djúpum, áköfum hreyfingum sem örva blóðflæði og koma jafnvægi á orkuflæði í andliti og hálsi. Eykur raka, mýkt og ljóma ásamt því að draga úr vöðvaspennu, höfuðverk, streitu og djúpum hrukkum.
Sannkölluð vellíðan.
Meðferðin er 80 mínútur