Appelsínulaus sódavatnsdrykkur
Það sem til þarf:
2,5 cm biti af engifer, saxaður
2 mintugreinar, blöðin týnd af og e.t.v. ein grein að auki til að skreyta
1 rósmaríngrein, blöðin tínd af, og e.t.v. önnur til að skreyta
Rifinn börkur af 1 óhúðaðri appelsínu og e.t.v. sneið til að skreyta
¼ tsk túrmerikduft
1 msk eplaedik
Nokkrir klakamolar
Sódavatn til að fylla glasið
Já, þetta lítur út eins og appelsínusafi en svo er alls ekki.
Appelsínusafi (og allir ávaxtasafar ef út í það er farið) er bein ávísun á blóðsykursrússíbana en þessi drykkur hér minnkar blóðsykurstoppa.
-
Setjið engifer, mintu, rósmarín, appelsínubörk, túrmerik og eplaedik í hátt glas og notið skaftið á trésleif til að stappa allt saman.
-
Fyllið glasið af sódavatni. Setjið svo klakamola í annað glas og síið drykkinn yfir. Berið hann fram með appelsínusneið eða mintu- eða rósmaríngrein til skreytingar, ef ykkur sýnist svo.
Magn: fyrir 1
Undirbúningstími: 5 mínútur
Glútenlaust og vegan
Uppskriftin er úr bókinni Fjórar vikur fjögur ráð eftir Glúkósagyðjuna Jessie Inchauspe. Bókin fæst í vefverslun Hreyfingar