Einfaldar uppskriftir
Haframúffur
Hitaðu ofninn í 180 gráður.
Stappaðu banana og blandaðu svo við 1 eggi.
1 tsk vanilla
1/2 bolli mjólk
1 msk hlynsíróp
1/2 bolli grísk jógúrt
1 1/2 bolli tröllahafrar
1 tsk lyftiduft
1 tsk kanil,
smá salt
Helltu öllu í muffinsform og skreyttu með berjum ofan á. Bakaðu í um 30 mín. Hægt að frysta og grípa með sér.
Eggjamúffur
Blandaðu vel saman 4 eggjum, salti og pipar. Skerðu meðlæti og settu í muffinsform, t.d. kirsuberjatómata, spínat, sveppir, lauk, spergilkál, og helltu eggjahrærunni yfir. Bakaðu við 180 gráður í um 20 mín.
Granólabar
2 b puffuð hrísgrjón eða qunioa
1 b tröllahafrar
½ b kókósmjöl
½ hakkaðar kasjú hnetur
½ b pistasíuhnetur
½ b þurrkað mangó
¾ tsk salt, 2 tsk karrý
1 tsk þurrkað engifer
smá pipar
Blanda öllu vel saman. Blandaðu síðan saman ½ b hlynsírópi og ½ b hnetusmjöri og blandaðu því svo vel við
þurrefnin. Þjappaðu í eldfast mót eða ofnskúffu og bakaðu þar til gullið.
Kókoskúlur
¾ b tröllahafrar
¼ b heilhveiti
2 msk kókós
¼ b mjúkt kókóssmjör
¼ hnetusmjör
1 msk chiafræ
½ msk vanilla
2-3 msk vatn
Blandaðu öllu vel saman og mótaðu kúlur. Veltu þeim upp úr kókos eða kakó.
Granóla
Hitaðu ofninn í 175 gráður og blandaðu saman:
1 b hafrar
½ b ósoðið qunioa
½ b möndluflögur
salt
2 msk kókósolía
2 msk hlynsíróp.
Bakaðu í um 20 mín.
Haframúffur
Eggjamúffur
Granólabar
Kókoskúlur
Granóla