Finndu árangurinn!
- Taktu eftir því hvernig þér líður, finnur þú aukna orku?
Ertu léttari á þér?
Áttu auðveldara með að vakna á morgnana?
Líttu í spegilinn og brostu. Þú ert á leið þinni til betra lífs.
Með þjálfun máttu búast við að verða hraustari, sterkari og glaðari. Þú sérð fljótt muninn í speglinum þegar þú ferð að æfa reglulega. - Haltu skrá yfir ummálin þín. Mældu ummálið á nokkrum stöðum, t.d. mitti, mjaðmir, læri og upphandlegg. Notaðu alltaf sama málbandið.
- Taktu myndir af þér. Það getur verið gaman að fylgjast með árangrinum með því að taka mynd af þér alltaf á sama tíma dags í sömu fötunum.
- Gerðu armbeygjuprófið. Teldu hvað þú getur gert margar armbeygjur og skráðu hjá þér. Prófaðu aftur eftir 6 vikur og skráðu hjá þér framfarirnar. Það er verulega hvetjandi að sjá árangurinn svart á hvítu.
Það er verulega hvetjandi að sjá árangurinn svart á hvítu!