Geta borðvenjur hjálpað okkur að grennast?
Hafðu í huga að seddutilfinningin kemur ekki um leið og við borðum og því er gott að borða hægt.
Hér eru þrjú ráð til að borða hægar:
- Leggðu hnífapörin frá þér á milli bita.
- Ekki byrja að skera nýjan bita fyrr en þú ert búin/n að kyngja.
- Ekki drekka með mat, heldur fáðu þér vatnsglas um hálftíma fyrir mat og eftir mat. Algengt er að fólk klári ekki að tyggja og drekki til að skola matnum niður.
Þrjú góð ráð til að borða hægar!