Glettilega góðar prótein pönnukökur
Það kemur á óvart hve kotasæla fer vel í pönnukökudeigi. Hún gefur léttleika í deigið en hefur ekki áhrif á bragðið. Það má einnig nota gríska jógúrt í stað kotasælu, en hún gefur aðeins súrari keim sem kallar e.t.v. á smá sætu á móti, t.d. msk af Good Good sírópi.
3/4 b. kotasæla
2 egg
½ b. haframjöl (gjarnan lífrænt)
1 skeið vanillu próteinduft (ég nota Bone Broth vanillu frá Ancient nutrition, en má líka nota annað, t.d. Now sykurlaust)
1-2 tsk vanilla
Sjávarsalt á hnífsoddi
Fersk ber sem meðlæti
Blandið öllu saman í blandara þar til kekkjalaust. Deigið á að vera fremur þykkt líkt og f. Amerískar pönnukökur. Ef þarf að þynna lítið eitt má blanda ½-1 msk af vatni eða möndlumjólk. Bakið á viðloðnarfrírri pönnu við miðlungs hita þar til fallega gullinbrúnar.
Sérlega góðar með ferskum berjum og e.t.v. Good Good hlynsírópi ef vill.