Hnetusmjörs dvergilkál
Dvergilkál (broccolini) er einstaklega heppilegt í grænmetisforrétti af því að það er afar trefjaríkt. Með því að hafa hnetusmjörssósu (já, í alvöru!) komið þið bragðlaukunum á óvart og lækkið blóðsykurstoppinn.
Það sem til þarf:
1 tsk sojasósa (eða tamari, ef þið viljið forðast glúten)
1 tsk sriracha
1 tsk ósætt hnetusmjör (gangið úr skugga um að það innihaldi ekkert nema jarðhnetur)
1 tsk volgt vatn
6-7 stilkar af dvergilkáli (broccolini)
Saxaðar hnetur að eigin vali (má sleppa)
-
Þeytið saman sojasósu (eða tamari), sriracha, hnetusmjör og svolítið volgt vatn í lítilli skál. Þetta virðist kannski skilja sig í upphafi en haldið áfram að þeyta og sósan verður slétt.
-
Setjið vatn í lítinn pott og hitið að suðu á háum hita. Bætið dvergilkálinu við og sjóðið í 2 mínútur til að mýkja kálið ögn. Hellið því í sigti og setjið á disk.
-
Dreyptið sósunni yfir kálið og berið fram. Gott er að dreifa dálitlu af söxuðum hnetum yfir, ef þið hafið þær tiltækar.
Magn: 1 skammtur
Undirbúningstími: 3 mínútur
Eldunartími alls: 3 mínútur
Glútenlaust, vegan
Uppskriftin er úr bókinni Fjórar vikur fjögur ráð eftir Glúkósagyðjuna Jessie Inchauspe. Bókin fæst í vefverslun Hreyfingar