Ljúffeng chia-jógúrt próteinskál með berjum
Þessi próteinríka skál er ekki aðeins bragðgóð og mettandi en einnig stútfull af næringu, trefjum, góðgerlum og andoxunarefnum (polyphenols).
¼ b chia fræ
1 b. möndlumjólk (eða önnur mjólk)
½ b. bláber eða jarðarber
½ tsk vanilluduft (eða önnur góð vanilla)
1 skeið vanillu próteinduft, sykurlaust (mæli með Now)
3 msk grísk jógúrt
1 tsk Good Good hlynsíróp (má sleppa)
Fersk ber, t.d. bláber og jarðarber
Blandið saman mjólk, próteindufti, vanillu og sírópi, hrærið vel saman. Bætið chia fræjum út í, hrærið vel í ca mínútu þar til fræin hætta að setjast á botninn.
Geymið í kæliskáp í a.m.k. klukkustund (betra t.d. yfir nótt).
Setjið chiablönduna í skál með jógúrt og ferskum berjum og njótið.
Gott múslí fer vel með í skálinni og/eða ca 1 msk möndlusmjör eða hnetusmjör.
Mæli með að vanda valið á múslí, nota án viðbætts sykurs.
Hér má finna girnilega uppskrift að heimagerðu sykurlausu múslí.