Minni sykur - fyrstu skrefin
Við vitum öll að kökur, gos og nammi innihalda mikið magn af sykri.
En þar sem búið er að troða sykri í ólíklegustu vörur er gott að hafa nokkur „trix“ við höndina.
- Bragðbættar mjólkurvörur:
a) Blandaðu saman þeirri bragðbættu og hvítu, þá er t.d. hægt að helminga sykurmagnið.
b) Bragðbættu hvíta jógúrtið með ferskum eða frosnum berjum. - Veldu niðursoðna tómata með engum viðbættum sykri í staðinn fyrir tilbúnar pastasósur og kryddaðu sjálf.
- Búðu til þitt eigið múslí, með hnetum, kókos, vanillu eða öðru sem gefur gott bragð. Þú getur stjórnað magninu af sykrinum sem notaður er.
- Í staðinn fyrir að grípa stykki sem eru oft full af sykri (eða sætuefnum), hafðu með þér box með hnetum, möndlum, döðlum og nokkrum dökkum súkkulaði bitum, einnig ávöxt eða egg.
- Í vinnunni er gott að eiga hrökkbrauð og hummus (bæði endist lengi), þegar hungrið hellist yfir.