Morgunmatur meistarans
Ljúffengur hafragrautur stútfullur af trefjum, próteinum og hollri fitu til að koma þér vel af stað inn í daginn.
Innihald:
1 bolli hafrar
3 bollar vatn
¼ tsk salt
1-2 msk hunang
1 msk kókosolía
1 tsk kanill
¼ bolli ristaðar möndlur
2 msk kókosflögur
2 msk próteinduft að eigin vali
Bláber og bananabitar
Aðferð:
Setið hafra og salt í pott og sjóðið þar til hafrarnir eru orðnir mjúkir. Takið pottinn af hellunni og bætið út í hunangi, kókosolíu og kanil. Leyfið aðeins að kólna og bætið síðan próteinduftinu út í.
Skreytið svo með bláberjum, bönunum, kókosflögum, möndlum og hunangi.
Verði ykkur að góðu!