Snilldar sykurlaus snakk blanda, holl og bragðgóð
Snilldar sykurlaus snakk blanda, holl og bragðgóð!
1 bolli pecan hnetur
1 bolli valhnetur eða möndlur
3/4 bolli graskersfræ
2 msk chia fræ
1 stífþeytt eggjahvíta
1 tsk gott sjávarsalt
1 msk hreint kakó
1/2 tsk chiliduft eða 1 tsk kanill
2 msk brætt smjör eða kókosolía
Má setja t.d. 1 msk Good Good sykurlaust síróp f. þá sem vilja sætara bragð, eða sleppa.
Hitið ofninn í 160°C
- Dreifið graskersfræjum á bökunarplötu og ristið í ofninum í 2 mín. Takið úr ofninum og veltið þeim vel og setjið aftur í ofninn í 1-2 mín þar til þú heyrir þau byrja að springa.
Takið úr ofninum og geymið. Dreifð hnetum og chia fræjum á bökunarplötu. Ristið í ofninum í ca 4- 5 mín.
- Stífþeytið eggjahvítur. Bætið salti, kakó og kryddi (nema salti) út í hvíturnar ásamt sírópi ef notað. Hellið hnetu og fræ blöndunni saman við hvíturnar og blandið vel pog vandlega saman með sleif.
- Lækkið hitann í 120°C. Dreifið blöndunni vel yfir bökunarplötuna og dreifið svo bræddu smjöri yfir, stráið saltinu yfir blönduna. Bakið í ca 20-25 mín, gott að hræra aðeins í, við og við.
- Gjarnan má bæta við blönduna í lokin hreinum þurrkuðum trönuberjum, án allra aukaefna eða meðhöndlunar (T.d. frá Hamingju).
Tilvalið að hafa blönduna með í fjallgönguna, í bílnum þegar hungrið sverfur að, eða bara heima við. Hlaðið trefjum, vítamínum, Omega 3 fitusýrum og annarri hollustu.
Um að gera að tvöfalda uppskriftina til að eiga lengur. Geymist í 5-6 vikur í vel lokaðri glerkrukku.
Lágkolvetna/Keto
Undirbúningur 5-10 mín.
14 skammtar
He í skammti 155