Teygja vikunnar: Tvöföld dúfa / eldiviður
Sitjið á dýnu á gólfi og setjið ökla yfir hné á báðum fótleggjum eins og þið væruð að stafla eldiviði ;)
Kreppið ökklana og slakið á inn í teygjuna. Það er hægt að notast við jóga kubb eða rúlla upp handklæði og setja undir lærin ef mjaðmirnar eru stífar.
Haldið setbeinum niðri og notið líkamsþyngdina til að komast dýpra inn í teygjuna.
Einbeitið ykkur að önduninni, hún ætti að vera djúp og regluleg. Reynið að halda teygjunni í um eina mínútu á hverri hlið.
Einbeitið ykkur að önduninni, hún ætti að vera djúp og regluleg.