Trefjaríkt sumarsalat
Ef þið viljið hjálpa blóðsykurskúrvum líkamans sérstaklega skuluð þið byrja á að borða klettasalatið. Með því að hefja máltíðina á grænmeti drögum við úr líkum á háum glúkósatoppi við lok hennar.
Það sem til þarf:
½ Burrata- eða mozzarellaostur
1 lítil ferskja, steinhreinsuð og skorin í báta
Lítil lófafylli af klettasalati
2 msk pekanhnetur
-
1 msk ólífuolía
-
Salt og pipar
Svona er þetta gert:
Setjið burrata ost, ferskjubáta, klettasalat og pekanhnetur í skál eða á djúpan disk og dreypið olífuolíu yfir. Kryddið með salti og pipar og berið fram.
Magn: 1 skammtur
Undirbúningstími: 5 mínútur
Glútenlaust
Hentar grænmetisætum
Uppskriftin er úr bókinni Fjórar vikur fjögur ráð eftir Glúkósagyðjuna Jessie Inchauspe. Bókin fæst í vefverslun Hreyfingar.