Verkur í hæl eða þreyta í fótum?
Prófaðu þá þetta:
Fylltu ½ lítra flösku af vatni og settu í frystinn.
Þegar hún er orðin frosin kipptu henni út og notaðu hana sem nuddrúllu undir ilina.
Gott er að standa og rúlla ilina til að ná meiri þrýstingi á svæðið.
Kælingin hefur verkjastillandi áhrif og getur minnkað bólgur og nuddið hressir þreytta fætur og eykur blóðflæði á svæðinu.
„Maður lifandi hvað það er gott að púla og svitna“!
Sammála?