Þarftu smá hvatningu til að koma heilsuræktinni inn í þitt daglega líf?
Finnurðu fyrir stöðnun og vantar aðhald og hvatningu til að rífa þig upp og ná árangrinum sem þú hefur lengi stefnt að?
6-vikna Áskorun með Bjargey er það sem þú þarft.
Keyrsla - Hvatning - Sviti - Orkumikil tónlist!
Fylltu þig orku og eldmóði og komdu þér í gang af krafti á þessu fjölbreytta og skemmtilega námskeiði. Þannig kemstu af stað og á beinu brautina.
Lögð er áhersla á að bæta líkamlegt hreysti með hnitmiðaðri styrktarþjálfun, þolþjálfun og hreyfiflæði. Æft er í mismunandi sölum þannig þú getur fengið sem mest út úr þjálfuninni. Hjól, lyftingar, þol lotur, infrarauðir tímar - allt sem þú þarft til að ná árangri! Áskorun er leiðin þín til heilbrigðari lífsstíls og aukinnar vellíðan.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Fjölbreytt æfingakerfi - Eftirbruni / Lyftingar / Infra Fitness o.fl.
- Fróðleikur og fræðsla sent út reglulega til að hvetja þig enn frekar áfram
- Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar 1x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu, heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Frábært námskeið, fjölbreyttar æfingar og dásamlegur þjálfari sem leggur metnað í að allir séu að gera sitt besta. Ég finn mikinn mun á styrkleika mínum strax á miðju námskeiði.“