Fjölbreytt alhliða þjálfun fyrir hressa karla á öllum aldri.
Lögð er áhersla á vel samsetta styrktar-, þrek- og liðleikaþjálfun.
1x í viku er heitur tími þar sem unnið er markvisst að djúpvöðvaþjálfun og liðleika. Notast er við handlóð, nuddrúllur og fleira.
1x í viku er styrktar- og þrekþjálfun þar sem áherslan er sett á að auka vöðvamassa, úthald og hreyfanleika. Notast er við handlóð, stangir og fleira.
Skothelt, heildrænt æfingakerfi fyrir karla sem vilja bæta líkamsástandið til muna í líflegum hópi.
Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum.
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Námskeiðið skilaði árangri, aukin vöðvamassi og minkandi fita. Er með axlarvandamál er þjálfari tók mikið tillit til og var tilbúinn með sér æfingar fyrir mig er á þurfti að halda.“