Lyftingar 101
Lærðu að lyfta lóðum þannig að þú náir sem bestum árangri á sem skemmstum tíma. Lærðu rétta tækni til að koma í veg fyrir álagsmeiðsli. Með markvissum lyftingum styrkir þú alla helstu vöðvahópa líkamans, bætir líkamsstöðu og gerir líkamann að öflugri brennsluvél.
Grunnbrennsla líkamans eykst til muna með reglulegum markvissum lyftingum.
Lyftingar eru ein besta leiðin til að komast hratt og vel í þitt besta mögulega form. Þjálfað eftir þaulskipulögðu æfingakerfi þar sem álag, endurtekningar og vöðvajafnvægi er úthugsað. Hentar bæði byrjendum og þeim sem finna fyrir stöðnun í sinni þjálfun.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Aðgangur að Heilsusíðum Hreyfingar
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- jarðsjávarpotti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.