Þarftu smá hvatningu til að koma heilsuræktinni inn í þitt daglega líf?
Finnurðu fyrir stöðnun og vantar aðhald og hvatningu til að rífa þig upp og ná árangrinum sem þú hefur lengi stefnt að?
Kröftug þjálfun með Matthildi er það sem þú þarft.
Keyrsla - Hvatning - Sviti - Orkumikil tónlist!
Fylltu þig orku og eldmóði og komdu þér í gang af krafti á þessu fjölbreytta og skemmtilega námskeiði. Þannig kemstu af stað og á beinu brautina.
Lögð er áhersla á að bæta líkamlegt hreysti með hnitmiðaðri styrktarþjálfun, þolþjálfun og hreyfiflæði. Æft er í mismunandi sölum þannig þú getur fengið sem mest út úr þjálfuninni. Hjól, lyftingar, þol lotur, infrarauðir tímar - allt sem þú þarft til að ná árangri! Kröftug þjálfun er leiðin þín til heilbrigðari lífsstíls og aukinnar vellíðan.
Innifalið:
- Þjálfun 3x í viku
- Fjölbreytt æfingakerfi - Eftirbruni / Lyftingar / Infra Fitness / Hjól o.fl.
- Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar 1x í viku
- Lokaður FB hópur
- Fróðleikur og fræðsla sent út reglulega til að hvetja þig enn frekar áfram
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útispa með heitum pottum, köldum pottiog gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
„Frábært námskeið, fjölbreyttar æfingar og dásamlegur þjálfari sem leggur metnað í að allir séu að gera sitt besta. Ég finn mikinn mun á styrkleika mínum strax á miðju námskeiði.“