Viltu aukinn styrk og betra þol? Þá er þetta hressandi morgunnámskeið fyrir þig. Hvetjandi stemning sem fær þig til að hendast fram úr rúminu og byrja daginn í góðum gír.
Hver tími er skipulagður þannig að þú náir að styrkja allan líkamann til muna og bæta þolið. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi á námskeiðinu þar sem unnið er með lotuþjálfun, lyftingar, stöðvar og fleira. 1x í viku er unnið með styrk og liðleika í heitum sal (30° - 32° innrauður hiti). Unnið er með Myzone púlsmæla svo þjálfunin verði markvissari og þú náir betri árangri. Hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Aðgangur að útiaðstöðu- heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.
Þú getur skráð þig í tíma með 25 klst. fyrirvara. (Heilsuaðild með 26 klst. fyrirvara) Skráning lokar 60 mín. fyrir tíma.
Þú færð staðfestingu á skráningu senda í tölvupósti. Komur í tíma eru staðfestar með augnskanna. Ef þú ert ekki mætt/ur í tímann þegar tími hefst er plássið þitt ekki öruggt.
Við biðjum þig vinsamlega að bera virðingu fyrir náunganum og ekki skrá þig í tíma nema þú ætlir þér 100% að mæta.
Afskráning!
Þú getur afskráð þig úr tíma á "Mínum síðum" og í staðfestingarpóstinum þínum. Ekki er hægt að afskrá sig með öðrum hætti.
***Ef þú afskráir þig ekki með a.m.k. 60 mín. fyrirvara ferð þú sjálfkrafa í 3ja daga skráningarbann.***
Reglur
Skráning á biðlista
Þú getur skráð þig í tíma með 25 klst. fyrirvara. (Heilsuaðild með 26 klst. fyrirvara) Skráning og afskráning lokar 60 mín. fyrir tíma.
Ef þú ert á biðlista þarft þú að vera tilbúin/nn til þess að mæta í tímann alveg þar til tími hefst. Ef það hentar ekki þarf að afskrá sig af biðlista með a.m.k. 60 mín. fyrirvara.
ATH! Velkomið að mæta á staðinn og taka laust pláss í hóptíma þegar hóptími hefst, ef það er laust pláss.
Þú færð staðfestingu á skráningu senda í tölvupósti ef það losnar pláss.
Komur í tíma eru staðfestar með augnskanna.
Við biðjum þig vinsamlega að bera virðingu fyrir náunganum og ekki skrá þig í tíma nema þú ætlir þér 100% að mæta.
Afskráning! Þú getur afskráð þig af biðlista á "Mínum síðum" og í staðfestingarpóstinum þínum. Ekki er hægt að afskrá sig með öðrum hætti.