Þrýstipunktar & nudd

Í Triggerpoint æfingum er unnið með nuddrúllur og nuddbolta til að ná frekari vöðvaslökun, losa um stífa vöðva og eymsli í vöðvum.
Unnið er markvisst með ákveðna punkta í líkamanum til að stuðla að minni bólgum og krónískum verkjum, aukinni hreyfigetu, liðleika og vellíðan.
ATH! Þátttakendur mæta með sína eigin nuddbolta, við mælum með 2x eins boltum (fást í móttöku Hreyfingar) og stórt jógahandklæði.
Nuddbolta hér: https://www.hreyfing.is/vorur/plus-boltar-2-saman-i-neti/
Salurinn er 28°C heitur.
Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.
*Í þessum tíma eru þátttakendur ekki í skóm. Einnig er nauðsynlegt að mæta með jóga handklæði, stórt handklæði eða eigin dýnu.

Innifalið:
- Þjálfun 2x í viku
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu með heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.