Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

BL+ eye cream

Til baka í vefverslun

BL+ eye cream með BL+ COMPLEX 

Háþróað augnkrem sem nærir, þéttir og dregur úr fínum línum. Næringarríkt og silkimjúkt krem sem verndar viðkvæmt augnsvæðið, gefur slétta og bjarta ásýnd.

BL+ eye cream
BL+ eye cream BL+ eye cream BL+ eye cream BL+ eye cream BL+ eye cream BL+ eye cream BL+ eye cream

Ítarlegri upplýsingar um vöru

Virkni:
BL+ Eye Cream með BL+ COMPLEX og bakúsíól, örvar kollagenframleiðslu í húð og dregur úr ásýnd fínna lína. Formúlan inniheldur einnig níasínamíð sem jafnar áferð og vinnur á litabreytingum í húð, seramíða sem tryggja ríkulegan raka og jarðsjó Bláa Lónsins sem veitir frísklegt yfirbragð. Árangursrík meðferð sem dregur úr öldrunareinkennum húðar og styrkir náttúrulegt varnalag hennar.

Ávinningur:
Viðkvæmt augnsvæðið verður þéttara og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Dregur úr ásýnd fínna lína og húðin verður sléttari, endurnærð og ljómandi.  

  • Ríkulegt krem, með silkimjúkri áferð 
  • Prófað af húðlæknum 
  • Án ilmefna 
  • Þróað fyrir viðkvæma húð augnsvæðisins 
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð  
  • Hentar grænkerum 
  • Hentar öllum húðgerðum

    NOTKUN:
    Notið kvölds og morgna. Berið lítið magn af augnkreminu, með baugfingri, gætilega á augnsvæðið.