Reglur - skráning í tíma
Þú getur skráð þig í tíma með 25 klst. fyrirvara.
Skráning lokar 60 mín. fyrir tíma.
** Meðlimir í Heilsuaðild hafa forskráningu í alla tíma og geta skráð sig með 26. klst. fyrirvara!
Þú færð staðfestingu á skráningu senda í tölvupósti. Komur í tíma eru staðfestar með augnskanna. Ef þú ert ekki mætt/ur í tímann þegar tími hefst er plássið þitt ekki öruggt.
Við biðjum þig vinsamlega að bera virðingu fyrir náunganum og ekki skrá þig í tíma nema þú ætlir þér 100% að mæta.
Afskráning!
Þú getur afskráð þig úr tíma á "Mínum síðum", beint í hóptímatöflunni og í staðfestingarpóstinum sem þú fékkst þegar þú skráðir þig. ATH! Ekki er hægt að afskrá sig með öðrum hætti.
Ef þú afskráir þig ekki með a.m.k. 60 mín. fyrirvara ferð þú sjálfkrafa í 3ja daga skráningarbann. Ath. þetta á einnig við um biðlista skráningu!
Skráningarbann byrjar að telja niður kl. 9:00 daginn eftir að skróp í tíma á sér stað!
Skráningarkerfið er 100% sjálfvirkt kerfi. Allar nánari upplýsingar um skráningu / biðlista / skráningarbann er að finna á Mínum síðum.