Hot Power Yoga Beats er heitt jógaflæði með skemmtilegri tónlist. Tímarnir eru kraftmiklir, krefjandi og skemmtilegir og eru kenndir í 36-38° heitum sal.
Jógaserían sem er kennd heitir Journey Into Power og er Baptiste Power Yoga stíll sem er föst sería. Í Baptiste Power Yoga er lögð áhersla á að styrkja iðkendur líkamlega sem og andlega með jákvæðum ásetningi.
Þessir tímar eru fyrir alla bæði byrjendur og lengra komna þar sem boðið er upp á aðlögun fyrir öll getustig.
Ath. Nauðsynlegt er að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu!