Mjúkt styrktarflæði
Dásamlegur tími í volgum sal (ekki upphituðum) þar sem notuð eru létt lóð, bolti, eigin líkamsþyngd o.fl. til að styrkja alla helstu vöðva líkamans. Áhersla er lögð á jafnvægi, kvið og bak og góðar teygjur og slökun í lok hvers tíma. Þú verður sterkari og liðugri eftir þennan tíma. Sannarlega tími fyrir líkama og sál!
ATH. Nauðsynlegt að mæta með stórt handklæði eða eigin jógadýnu.