Hot Yoga Barre - Pop Up tími með Þóru Rós. Tíminn sem er að slá í gegn í New York og víðar!
Hot Yoga Barre er sambland af styrkjandi, flæðandi og fjölbreyttum æfingum. Unnið er með eigin líkamsþyngd og önnur áhöld ( lóð, bolta og stöng). Þú öðlast meiri meðvitund, heldur líkamanum sterkum og virkum og huganum rólegum og einbeittum. Í lok tímans munt þú vera endurnærður á líkama og sál og finna fyrir aukinni orku og jarðtengingu.
Þjálfaðu líkamann í algjört topp ástand í 30-32° heitum sal.
Ath. Nauðsynlegt er að koma með jógahandklæði eða eigin jógadýnu!