Fara yfir á efnissvæði
Kaupa kort
Mínar síður
Tímatafla

Jafnlaunastefna

Hreyfing hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun sem nær til alls starfsfólks með jafnlaunastefnu þessa sem grunn. Tilgangur með jafnlaunakerfi er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja innan Hreyfingar með það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsfólks til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

Mikilvægt er að fylgja meginreglunni um að öll njóti sömu tækifæra:

  • kjör eru ákveðin með sama hætti fyrir sömu eða jafn verðmæt störf
  • starfsfólk hefur sömu tækifæri til menntunar/endurmenntunar/símenntunar/námskeiða
  • öllum kynjum stendur til boða að sækja um störf hjá okkur
  • við finnum leiðir til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf
  • við líðum ekki ofbeldi; hér undir fellur meðal annars kynbundið/kynferðislegt ofbeldi/áreitni

Jafnlaunastefna þessi er órjúfanlegur hluti af launastefnu Hreyfingar og er jafnlaunakerfið undir stöðugum umbótum og eftirliti. Þættir sem hafa áhrif á launamyndun eru m.a. gildandi kjarasamningar, lög og reglur ásamt launaþróun. Starf, menntun, þekking, reynsla og persónubundnir þættir skipta einnig máli þegar kemur að launamyndun. Komi upp frábrigði er brugðist við þeim.

Í jafnlaunakerfinu eru sett fram jafnlaunamarkmið og þau rýnd og endurskoðuð samkvæmt verklagsreglum þar að lútandi.

Jafnlaunastefnan er kynnt öllu starfsfólki og aðgengileg almenningi.

 

Ef þú hefur einhverjar athugasemdir varðandi jafnlaunastefnuna þá máttu endilega hafa samband hér.

Til baka
Til baka
Til baka
Til baka
Til baka