Bjargey Aðalsteinsdóttir
Þeir sem sækja tímana hennar Bjargeyjar taka strax eftir yfirvegaðri og þægilegri nærveru hennar enda leggur hún ríka áherslu á að tímarnir hennar næri bæði líkama og sál. Sjálf sækir hún sína næringu í göngur úti í náttúrunni og í golfi sem tengja saman líkama og innri líðan.
Reynsla Bjargeyjar af líkamsrækt nær langt aftur en hún var farin að kenna þolfimi aðeins 17 ára gömul. Menntun hennar liggur þar að auki á þessu sviði en hún er með meistaragráðu í íþróttavísindum auk þess að hafa menntað sig heilmikið í jógafræðum, td. orkustöðvarnar (chakra), Ayurveda, Thai massage ofl..
Á virkum dögum starfar Bjargey sem heimilisfræðikennari þar sem hún kennir börnum í Valhúsaskóla um heilbrigt líferni.

Tímar með Bjargey Aðalsteinsdóttir
Eftirbruni
Snöggálagsþjálfun með stuttum en krefjandi lotum.
Hot Core
Æðislegur heitur tími þar sem sérstök áhersla er lögð á að styrkja kjarnavöðvana
Infra Barre Burn
Tímarnir sem koma þér í þitt allra besta form. Heitur salur, dýna, lóð, bolti, sviti, stöng, átök og ÞÚ!
Lyftingar
Engin spor, ekkert hopp aðeins hörku góðar lyftingar.
MTL
Stinnir og sterkir vöðvar í kviði, baki, rassi og lærum.
Pallar & styrkur
Gömlu góðu pallarnir í bland við góðar styrktaræfingar.