Matthildur María
Matthildur María er með fjölbreyttan bakgrunn þegar kemur að hreyfingu: Hún dansaði ballett í fjórtán ár ásamt því að hafa æft fótbolta, handbolta, fimleika og magadans og spilar auk þess golf. Skemmtilegasta líkamsræktin finnst henni hins vegar vera að hjóla, því þar getur hún hreyft sig í góðum félagsskap með skemmtilegri tónlist. Tímarnir hennar í Hreyfing eru fullir af gleði og góðri tónlist sem fylla mann orku fyrir daginn. Matthildur María leggur mikið upp úr heilsusamlegum lífsstíl og hollri næringu.
Besta byrjunin á deginum?
Mér finnst langbest að byrja daginn á því að gefa mér smá stund á morgnana til að teygja og gera hreyfiflæði. Svo drekk ég um það bil einn Chilly's brúsa af vatni áður en ég fæ mér morgunmat til að koma meltingunni vel af stað.

Tímar með Matthildur María
Hjól
Verulega hvetjandi, áhrifarík og markviss þolþjálfun á hjóli.
Infra Barre Burn
Tímarnir sem koma þér í þitt allra besta form. Heitur salur, dýna, lóð, bolti, sviti, stöng, átök og ÞÚ!
MTL
Stinnir og sterkir vöðvar í kviði, baki, rassi og lærum.