Náðu hámarksendurheimt með góðri rúllu. Hægt er að nota rúlluna á margvíslegan hátt og hentar vel til að losa um streitu í vöðvum. Nuddið eykur blóðflæði og getur hjálpað þér að slaka á taugakerfinu ásamt því að losa um vöðvahnúta og bandvef.
Eiginleikar:
- Stíf rúlla
- Hægt að nota til að nudda læri, kálfa, fætur, bak, hendur o.fl.
- Þolir mikið álag, upp að 150 kg
- Bakteríudrepandi EPP efni – auðvelt að þrífa
- Hrindir frá svita
- Dæmi um æfingar sem hægt er að gera: https://www.healthline.com/health/fitness-exercise/foam-rolling-how-to#Bonus-stretch:-Neck