Takk fyrir traustið - Lokum tímabundið fyrir nýskráningar
Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að veita okkar meðlimum einstaka upplifun þar sem fagmennska, framúrskarandi þjónusta, hvatning og gleði er í fyrirrúmi. Undanfarið ár höfum við verið svo lánsöm að fá til okkar sífellt fleiri meðlimi sem setja heilsuna í fyrsta sæti og deila með okkur ástríðu fyrir heilbrigði og vellíðan.
Nú er svo komið að Hreyfing annar ekki fleiri meðlimum svo unnt sé að tryggja að við getum áfram boðið upp á þjónustu af hæsta gæðaflokki og viðhaldið þeirri persónulegu upplifun sem einkennir Hreyfingu. Við höfum því tekið ákvörðun að loka tímabundið fyrir nýskráningar.
Hreyfing spa - einstök spa upplifun
Komdu til okkar og slakaðu á í notalegu umhverfi í nýju spa slökunarrými með innrauðri saunu, hengirólum og heitum potti.
Finndu hvernig skilningarvitin vakna. Endurnærðu líkama og sál í eimböðum, gufum, köldum og heitum pottum. Upplifðu einstakar heimsklassa snyrti-, nudd- og spameðferðir.
Heilsuaðild - æfðu með þjálfara
Heilsan er það mikilvægasta sem við eigum, taktu hana föstum tökum strax í dag með aðstoð þjálfara. Þú færð aðgang að fjölbreyttri hópþjálfunardagskrá í tækjasal, sérstökum SkillX tímum í glænýjum tækjasal, ýtarlegar líkamsástandsmælingar, sérhæfða æfingaáætlun, aðgang að þjálfara í sal, forskráningu í alla hóptíma og sérstöku þjálfunar appi auk fjölda annarra fríðinda.
Í Heilsuaðild hefur þú aðgang að Hreyfing spa, færð slopp og handklæði. Þar er notalegt slökunarrými, hengirólur, innrauð sauna og heitur pottur. Úti á veröndinni eru heitir pottar, kaldur pottur, sauna og blautgufa.
Heilsusíður Hreyfingar
Á heilsusíðum Hreyfingar finnur þú ýmiskonar heilsutengdan fróðleik, spennandi uppskriftir og hvatningu sem hjálpar þér að ná þínum markmiðum!
Kaupa kort
Taktu heilsuna föstum tökum og komdu í Hreyfingu.
Ef þú hefur ekki komið til okkar áður eða þarft aðstoð við að koma þér af stað getur þú bókað frían tíma með ráðgjafa hér!
Námskeið
SkillX - Tími til að taka á því
Fjölbreytt þjálfun með ýmsum skemmtilegum áskorunum í glænýjum SkillX sal. SkillX æfingarnar samanstanda af kraftlyftingum, ólympískum lyftingum, þol og úthaldsæfingum ásamt liðleikaþjálfun.
SkillX tímarnir eru fyrir Heilsuaðild og þá sem bæta SkillX aðgangi við aðild sína.

Gjafakort Hreyfingar
Hægt er að fá gjafakort að ákveðinni upphæð, fyrir ákveðna þjónustu eða einfaldlega af þeirri samsetningu sem hentar best.
Sá sem gjöfina fær getur nýtt gjafakortið í dásamlega spaupplifun eða í heilsurækt hjá Hreyfingu.