Hin fullkomna styrktarblanda í heitum innrauðum sal. Fjölbreytt og árangursrík æfingakerfi sem koma þér í þitt allra besta form. Þú þjálfar styrk, þol og liðleika á afar skemmtilegan hátt þar sem notuð eru hin ýmsu áhöld. Æfingakerfi á borð við innrauðan styrk þar sem unnið er með þunga ketilbjöllu og lóð, Hot Fitness þar sem unnið er með bolta, léttum lóðum, eigin líkamsþyngd o.fl
Vertu með í Eðalþjálfun í hópi góðra kvenna!
Innifalið:
- Lokaðir tímar 2x í viku
- Aðgangur að Hreyfing spa virka daga
- Baðhandklæði við hverja komu
- Boditrax - aðgangur að nákvæmri líkamsástandsmælingu
- Hvetjandi og fræðandi tölvupóstar 1x í viku
- Aðgangur að lokuðum Facebook hóp
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
- Aðgangur að útiaðstöðu- heitum pottum, köldum potti og gufuböðum
Minnum á íþróttastyrki stéttarfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.
**ATH! Ef þú átt inneign upp í námskeið og vilt nýta hana þarft þú að vera innskráð/ur á Mínar síður áður en þú skráir þig á námskeiðið. Þá dregst inneignin sjálfkrafa frá námskeiðsgjaldinu.